Ellilífeyrir - 65 ára+

Þeir sem eru 65 ára og eldri og hafa búið á Íslandi í minnst þrjú ár eiga einhvern rétt á ellilífeyri. Í reiknivél er hægt að slá inn mismunandi forsendur og sjá niðurstöðu. Þeir sem eru að hefja töku ellilífeyris eru hvattir til að kynna sér vel þá kosti sem í boði eru. Í þessu myndbandi eru allar helstu upplýsingar fyrir þá sem eru að hefja töku ellilífeyris.

Fylgiskjöl með umsókn

Þegar sótt er um ellilífeyri þarf að skila inn umsókn en auk þess þarf að skila inn eftirtöldum gögnum:

  • Staðfesting á að sótt hafi verið um hjá lífeyrissjóði
  • Tekjuáætlun
  • Upplýsingar um nýtingu skattkorts
Hægt er að skila inn öllum gögnum í gegnum eftirfarandi umsókn
Sækja um